Hvað er Óskaskrín?

Óskaskrín er kærkomin nýjung á sviði gjafavöru á Íslandi, byggð á hugmynd sem slegið hefur í gegn um allan heim. Með Óskaskríni gefurðu upplifanir í stað hluta! Og það sem meira er; þú gefur viðtakandanum færi á að velja sína uppáhalds upplifun úr fjölda freistandi möguleika sem leynast í hverju boxi. Þú velur þemað – viðtakandinn velur ævintýrið!
Sjáðu meira um Óskaskrín hérna
Óskaskrínin átta eru á mismunandi verði og höfða til fjölbreytilegs smekks og ólíkra áhugasviða viðtakenda. Óskaskrín er gjöf sem hittir alltaf í mark!
Fjör
5.900 kr.
Dekurstund
Kúltúr
Mögnuð gjöf handa öllum sem vilja læra eitthvað nýtt, víkka sjóndeildarhringinn, upplifa eitthvað óvænt. Tilvalin og hvetjandi gjöf handa einhverjum sem þér finnst skilið að geri (loksins) eitthvað nærandi og upplífgandi fyrir sjálfa sig!
9.900 kr.
Gourmet
Úrval þriggja rétta máltíða fyrir tvo á mörgum bestu veitingahúsum landsins. Pottþétt gjöf handa öllum sem elska góðan mat, kunna að meta rómantíska stund með ástinni sinni eða ljúffengan málsverð með góðum vini.
14.900 kr.
Dekur
Adrenalín
Rómantík
Ómissandi skrín og eftirsótt, enda ætlað tilfinningaríku fólki í leit að griðarstað frá ys og þys hversdagsleikans. Móttakandi getur valið úr fjölmörgum hótelum víðsvegar um landið þar sem tilvalið er að slaka á og njóta náttúrunnar - í öllum skilningi.
Lúxus
Óvænt og ánægjulegt úrval fyrir þá sem kjósa og eiga skilið aðeins meiri munað en venjulega – lúxus ævintýri sem er í lagi að veita sér endrum og sinnum.
59.900 kr.
Töff
14.900 kr.
Óskaskrín
Viljir þú setja saman árstíðarbundna, sérsniðna eða óvænta gjöf til starfsmanna eða viðskiptavina þá lumum við á alls kyns lausnum fyrir þig. Hafðu samband í síma 577 5600 eða á info@oskaskrin.is
Vefmiðlar