Spurt og svarað

Þú getur gefið Óskaskrín sem gjöf eða keypt fyrir þig sjálfa/n. Hægt er að velja milli 30 mismunandi skrína en í boði er fjölbreytt afþreying, veitingastaðir, hótel, dekur og ýmiskonar upplifanir um allt land. Eigandi Óskaskrínsins velur sér eina upplifun úr úrvali valkosta sem sjá má hér á heimasíðu okkar, pantar hjá þjónustuaðila, mætir og nýtur. Mikilvægt er að láta vita þegar bókun er gerð eða við komu að ætlunin sé að nýta Óskaskrín.

Algengar spurningar um Óskaskrín

Almennt um Óskaskrín og kaupin

Óskaskrín er gjafaaskja sem inniheldur gjafakort sem hægt er að nota hjá einum af samstarfsaðilunum í Óskaskríninu.

Einnig er hægt að kaupa Óskaskrín rafrænt og hýsa það í rafrænu veski í símanum þínum (Wallet).

Þú getur keypt Óskaskrín hér á vefnum, þar sem allt úrvalið er í boði. Óskaskrín fást einnig í verslunum Pennans Eymundsson, í verslunum Hagkaups og í Blómavali (Skútuvogi, Selfossi og Akureyri).

Þú getur líka komið til okkar á Suðurlandsbraut 30, 4. hæð.

Askja er klassíska gjafaaskjan okkar — tilbúin gjöf sem hægt er að afhenda beint.

Umslag er nettari útgáfa af sömu gjöf. Það hentar vel þegar senda á Óskaskrínið í pósti eða gefa það með korti.

Rafrænt Óskaskrín berst samstundis í tölvupósti og fer beint í Apple Wallet eða Google Wallet. Það er tilvalið þegar gjöfin þarf að berast strax.

Nokkur Óskaskrín eru eingöngu seld rafrænt og það kemur fram á vörusíðunni þeirra.

Já. Í körfunni getur þú valið að láta pakka Óskaskríninu inn í fallegan gjafapappír og að senda persónulega kveðju með því. Hvort tveggja er valið áður en gengið er frá pöntun.

Pantanir sem berast fyrir kl. 12:00 á virkum dögum fara í póst samdægurs, annars næsta virka dag.

Í boði er heimsending og afhendingarstaðir með Dropp, sending með Póstinum, eða þú getur sótt Óskaskrínið til okkar á Suðurlandsbraut 30, 4. hæð þér að kostnaðarlausu. Sendingarkostnaður sést í greiðsluferlinu þegar þú velur sendingarmáta.

Rafræn Óskaskrín berast samstundis í tölvupósti og kosta enga sendingu.

Já. Óskaskrín er vinsæl gjöf til starfsfólks og viðskiptavina og við bjóðum sérmerkingar á öskjur, umslög og rafræn skrín svo gjöfin verði persónulegri.

Hafðu samband við okkur á [email protected] eða í síma 577 5600 og við aðstoðum þig við að finna réttu lausnina.

Hvernig nota ég Óskaskrín

Þú getur gefið Óskaskrín sem gjöf eða keypt það handa sjálfum þér. Hægt er að velja milli fjölda ólíkra skrína þar sem í boði er fjölbreytt afþreying, veitingastaðir, hótel, dekur og ýmiss konar upplifanir um allt land.

Eigandi Óskaskrínsins velur sér eina upplifun úr úrvali valkosta sem sjá má hér á heimasíðunni, pantar hjá þjónustuaðilanum, mætir og nýtur. Mikilvægt er að láta vita þegar bókun er gerð, og aftur við komu, að ætlunin sé að nýta Óskaskrín.

Á Óskaskríninu þínu stendur hvaða tegund það er — til dæmis Askja, Hekla eða Bröns fyrir tvo.

Farðu í Vörur hér efst á síðunni, finndu þína tegund og smelltu á hana. Þar sérðu alla samstarfsaðila og upplifanir sem eru í boði fyrir það Óskaskrín.

Undir „Óskaskrínið mitt“ getur þú séð hvaða tegund kortið þitt er og hvenær það rennur út. Sláðu inn númerið sem stendur á sjálfu kortinu, ekki númerið aftan á gjafaöskjunni.

Athugaðu að valmöguleikar eldri gjafakorta kunna að hafa breyst frá því kortið var keypt. Nýjustu upplýsingar um hvert kort eru alltaf hér á vefnum.

Við mælum eindregið með því. Hafðu samband við þjónustuaðilann sem þú velur og bókaðu tíma — og láttu vita strax við bókun að þú ætlir að nýta Óskaskrín. Minntu líka á það við komu.

Já. Rafræn Óskaskrín fara beint í Apple Wallet eða Google Wallet, svo þú þarft aldrei að muna eftir kortinu — það er alltaf í símanum.

Eigir þú Óskaskrín í öskju eða umslagi getur þú líka sett það í símann. Það er gert hér.

Nei. Eigandi Óskaskrínsins velur sér eina upplifun og nýtir hana hjá þeim þjónustuaðila.

Gildistími og framlenging

Óskaskrín gildir í 2 ár frá kaupum. Þú getur alltaf athugað gildistímann á þínu korti undir „Óskaskrínið mitt“ hér efst á síðunni.

Já. Á síðunni „Framlengja“ getur þú keypt sex mánaða framlengingu á Óskaskríninu þínu. Sláðu inn númerið sem stendur á sjálfu kortinu — ekki númerið aftan á gjafaöskjunni — og fylgdu leiðbeiningunum.

Verð framlengingar fer eftir tegund Óskaskríns og verðskrána má sjá á framlengingarsíðunni.

Framlengingin gildir í sex mánuði frá þeim degi sem hún er keypt.

Athugaðu að valmöguleikar eldri gjafakorta kunna að hafa breyst frá því kortið var keypt.

Kortanúmerið er lykillinn að inneigninni og því getum við því miður ekki gefið út nýtt kort í stað þess sem tapast.

Besta leiðin til að passa upp á Óskaskrínið er að setja það í símann strax — þá er það alltaf við höndina í Apple Wallet eða Google Wallet, þótt askjan sjálf týnist.

Skipti, skil og ábyrgð

Já. Þú getur skipt og valið nýja tegund Óskaskríns gegn greiðslu á mismuninum hafi verð hækkað eða aðrar vörur komið í staðinn. Við skipti þarf varan að vera í upprunalegu ástandi í óopnuðum umbúðum.

Sendu Óskaskrínið til okkar eða komdu með það á Suðurlandsbraut 30, 4. hæð.

Já, en það er aðeins kaupandinn sem getur skilað Óskaskríni — ekki sá sem fékk það að gjöf.

Ef Óskaskrínið var keypt hér á oskaskrin.is getur kaupandinn skilað því innan 14 daga frá kaupum, enda sé varan í upprunalegu ástandi í óopnuðum umbúðum.

Hafi upplifun þegar verið bókuð hjá þjónustuaðila fæst Óskaskrínið ekki endurgreitt.

Í hverjum flokki eru margir aðrir valkostir og nýir bætast reglulega við. Nýjustu upplýsingar um hvaða valmöguleikar standa til boða fyrir þína tegund Óskaskríns eru alltaf undir Vörur hér á vefnum, svo þú finnur alltaf eitthvað við þitt hæfi.

Verðir þú fyrir óhappi eða tjóni í upplifuninni sjálfri gilda ábyrgð og skilmálar þjónustuaðilans.