Berjaya Mývatn Hótel

Dvöl á einstökum stað við Mývatn

Velkomin í kyrrðina við Mývatn. Hér sameinast stórbrotin náttúra Norðurlands og hlýleg gestrisni. Hönnun hótelsins er jarðbundin og fellur vel að umhverfinu. Með 59 skemmtilega hönnuðum herbergjum er stemningin persónuleg og minnir á notalegt gistiheimili, en með öllum þeim þægindum sem nútímahótel hefur upp á að bjóða. Alrýmið er opið og bjart, hannað til þess að gestir geti átt góðar stundir saman eða einfaldlega slakað á og notið útsýnisins - á útisvæði hótelsins eru sömuleiðis heitir pottar þar sem gestir geta notið kyrrðarinnar og samveru hvort með öðrum.

Njóttu alls þess sem Mývatnssveit hefur upp á að bjóða en Mylla Restaurant, hótelveitingastaðurinn, hannar matseðilinn í takt við umhverfið og notar hráefni úr sveitinni í kring - nútíma veitingastaður þar sem boðið er upp á gómsætan mat og drykk í þægilegu andrúmslofti.

Upplifðu Mývatnssveit

Staðsetning hótelsins er fullkomin fyrir þá sem vilja kanna helstu náttúruperlur Norðurlands, stutt er í helstu kennileiti á borð við Dimmuborgir, Skútustaðagíga og jarðhitann í Kröflu. Óviðjafnanleg náttúran hefur heillað jafnt ferðamenn sem og náttúrufræðinga og vísindamenn - hið fullkomna stopp á ferð um landið.

Staðsetning

660 Reykjahlid – Mývatn

Bókanir

444 4000

myvatn(hja)icehotels.is

Berjaya Mývatn Hótel tekur á móti eftirfarandi Óskaskrínum

Engin vara fannst sem passar við valið.