Bjargarsteinn Mathús Grundarfjörður

Bjargarsteinn er nýtt og spennandi veitingahús í Grundarfirði sem opnað var í lok júlí 2015. Húsið stendur við sjávarsíðuna og er yndislegt að sitja í veitingasal þess með útsýni út yfir fjörðinn og hið glæsilega Kirkjufell. Matseðillinn tekur stöðugum breytingum en er fjölbreyttur með alþjóðlegum og árstíðabundnum réttum.

Bjargarsteinn Mathús Grundarfjörður tekur á móti eftirfarandi Óskaskrínum

Áhugavert

Húsið Bjargarsteinn var flutt 140 km frá Akranesi til núverandi staðsetningar og fékk nýtt hlutverk sem veitingahús.

Gott að vita

Undanfarin ár hafa hvalir og höfrungar verið reglulegir gestir í firðinum og þeim fylgt mikið líf og fjör.

Staðsetning

Bjargarsteinn Mathús, Sólvellir, 350 Grundarfjörður

Bókanir

Vinsamlegast bókið með því að senda tölvupóst á [email protected], eða í síma 438-6770 eða 867-7411