Suðurlandsbraut 30, 4. hæð
Sími: 577 5600
[email protected]
Opið frá 9-15 alla virka daga.
Sumaropnun 9-14 alla virka daga.
Fosshótel Austfirðir er notalegt þriggja stjörnu hótel staðsett í gömlu húsakynnum Franska spítalans á Fáskrúðsfirði og hentar vel þeim sem vilja njóta kyrrðar og náttúrufegurðar Austfjarða.
Veitingastaðurinn L’Abri er á hótelinu, ásamt safni sem gerir skil á lífi og starfi franskra sjómanna sem gegna stóru hlutverki í sögu bæjarins. Hótelgestir fá afslátt af aðgangseyri inn á safnið.
L’Abri er veitingastaður á jarðhæð Fosshótel Austfjarða með útsýni yfir bryggju Fáskrúðsfjarðar. Innanhúshönnun er í frönskum stíl og matseldin einkennist af franskri matarhefð unnin úr íslensku hráefni úr héraði. Fyrir börnin er boðið upp á sérstakan barnamatseðil og úrval léttvína, bjóra og kokteila á barnum.
Hafnargata 11-14
750 Fáskrúðsfjörður