Grái Kötturinn

Grái Kötturinn opnaði í október 1997.

Veitingastaðurinn var sá fyrsti sinnar tegundar í Reykjavík, s.k. „American breakfast diner“.

Þar er enn að finna heimagerðar amerískar pönnukökur og nýbakað brauð – og svo má ekki gleyma því að við búum að 23 árum af beikon-steikingar-reynslu.

Fastagestir okkar hafa í gegnum árin ekki enn valið sér uppáhalds rétt af matseðlinum, þeir eru svo jafngóðir en ætli Trukkurinn og Amerísku Pönnukökurnar tróni ekki á toppnum.

Eitt er þó alveg öruggt; héðan fara allir saddir og sáttir.

Gott að vita

Beyglurnar eru líka algjört lostæti.

Staðsetning

Hverfisgata 16a, 101 Reykjavík.

Bókanir

Óþarfi að bóka borð, bara mæta!

Bröns er afgreiddur frá kl. 8:30 til kl. 14:00 alla daga vikunnar.

Grái Kötturinn tekur á móti eftirfarandi Óskaskrínum