Suðurlandsbraut 30, 4. hæð
Sími: 577 5600
[email protected]
Opið frá 9-15 alla virka daga.
Sumaropnun 9-14 alla virka daga.
Hótel Blönduós er staðsett í gamla bænum á Blönduósi, sem kunnugir segja einstakan fyrir fallega og ósnortna götumynd. Hótelið hefur verið endurnýjað í anda upprunalegs útlits og ber yfir sér hlýlegan sjarma liðinna tíma.
Elsti hluti hótelsins, hið svokallaða Sýslumannshús, var byggður árið 1900 en frá árinu 1943 hefur húsið þjónað ferðalöngum sem hótel og veitingastaður. Veitingastaðurinn ber nafnið Sýslumaðurinn.
Sýslumaðurinn, veitingastaður hótelsins, opnaði þann 15. maí 2025. Boðið er upp á morgunverðarhlaðborð á hverjum degi og á kvöldin er hægt að snæða þar kvöldverð. Drykkir eru í boði á barnum okkar. Frá barnum og veitingastaðnum er gríðarlega fallegt sjávarútsýni.
Hótel Blönduós er sumarhótel sem er opið frá 1.maí – 31.október.
Hótel Blönduós, Aðalgata 6, 540 Blönduós
Hótel Blönduós er opið frá 1. maí - 31. október