Hótel Eyja

Nútímalegt hótel í hjarta Reykjavíkur með fríum bílastæðum, og nóg af þeim. Hótelið er það eina á Íslandi með Green Globe vottun, sem þýðir að sjálfbærni er í fremstu röð án þess að gestir þurfi að hafa fyrir því, allt er hugsað fyrir þá. Þekkt fyrir frábæran lífrænan morgunmat og einstaka hönnun, þar sem herbergin skarta fallegum himnarúmum.

Áhugavert

Hótelið er þekkt fyrir hlýlegt og afslappað andrúmsloft þar sem gestir geta notið rólegrar stundar á barnum eftir daginn og horft yfir borgina og Esjuna í fjarska. Innréttingar eru innblásnar af norrænni hönnun með áherslu á þægindi, sjálfbærni og notalega stemningu sem gerir dvölina bæði stílhreina og afslappandi.

Gott að vita

Hótel Eyja er staðsett í rólegu en miðsvæðis hverfi í Reykjavík, í stuttri fjarlægð frá Laugavegi og helstu þjónustu borgarinnar. Hótelið býður upp á þægilega aðstöðu með góðum aðgangi að bílastæðum og er því hentugt fyrir borgarferð eða á leið um landið.

Staðsetning

Hótel Eyja er staðsett í Brautarholti 10–14, 105 Reykjavík.

Bókanir

Vinsamlegast bókið með því að senda tölvupóst á [email protected]

Skoða hótel

Hótel Eyja tekur á móti eftirfarandi Óskaskrínum