Hótel Hálönd

Hótel Hálönd er við rætur Hlíðarfjalls með frábæru útsýni yfir Akureyri og víðsýnt til allra átta. Á hótelinu eru 54 tveggja manna herbergi sem öll eru 26m2.

Hótel Hálönd er sjálfsafgreiðsluhótel og fá gestir aðgangskóða sendan fyrir innritun. Hótelið er reyklaust með öllu og gæludýr eru ekki leyfð, hvorki innahúss né við hótelið.

Óskaskrín gildir á þessu hóteli frá 3.janúar-30.apríl og frá 1.nóvember-19.desember.

Hótel Hálönd tekur á móti eftirfarandi Óskaskrínum

Áhugavert

Staðsetning hótelsins er upplögð fyrir ferðalanga í leit að ævintýrum á norðurlandi en hér í kring er að finna fjöldan allan af afþreyingu. Hótel Hálönd er í rólegu og öruggu umhverfi, fjarri ljósmengun svo hægt er að njóta þess að horfa á stjörnubjartan himininn eða norðurljósin dansa. Eftir annasaman útivistardag er tilvalið að slaka á og næra líkama og sál í heitu pottunum. Aðeins 5km eru í miðbæ Akureyrar en þar má finna fjöldan allan af veitingastöðum, fjölmörg söfn og fleira sem gaman er að skoða.

Gott að vita

Morgunmatur ekki í boði.

Á neðri hæð hótelsins er skíða- og hjólageymsla þar sem finna má læsta þurrkskápa sem tilheyra hverju herbergi en þar er hægt að geyma og þurrka útifatnað og annan viðbúnað. Í skíða- og hjólageymslunni er aðstaða til að geyma skíðabúnað, hjólabúnað og annan viðbúnað sem gestir eru með í för. Á sama stað má einnig finna þvottaaðstöðu sem gestir hótelsins geta nýtt sér gegn gjaldi.

Staðsetning

Hótel Hálönd, Heimaland 5-7, 603 Akureyri.

Bókanir

Vinsamlegast bókið með því að senda tölvupóst á [email protected] með númeri Óskaskríns.

Óskaskrín gildir á þessu hóteli frá 3.janúar-30.apríl og frá 1.nóvember-19.desember.

Skoða vefsíðu hótelsins