Suðurlandsbraut 30, 4. hæð
Sími: 577 5600
[email protected]
Opið frá 9-15 alla virka daga.
Sumaropnun 9-14 alla virka daga.
Rólegt og fallegt hótel rétt fyrir utan Borgarnes, umkringt náttúru og golfvelli með útsýni yfir Borgarfjörð. Fullkomið fyrir afslöppun með heitum pottum, góðum veitingum og allri helstu aðstöðu, aðeins um klukkustund frá höfuðborginni.
Hótel Hamar er staðsett í friðsælu umhverfi rétt fyrir utan Borgarnes, um klukkustundar akstur frá Reykjavík. Staðsetningin gerir hótelið að góðum viðkomustað fyrir ferðalög um Vesturland. Þar vaknar þú umkringdur opnum himni og grænum hæðum og getur eytt deginum á golfvellinum áður en þú slakar á í heitum pottum og saunu í rólegu og fallegu umhverfi.
Veitingastaðurinn Hamarinn býður upp á einstakt útsýni yfir Borgarfjörð og fjallahringinn í kring, þar sem vandaður matur og hlýleg, fagleg þjónusta fara saman í notalegu umhverfi. Matseðillinn byggir á fersku hráefni úr héraði og skapar þannig heilstæða og vandaða matupplifun
Hótel Hamar er staðsett að Hamri, 310 Borgarnesi, um klukkustundar akstur frá Reykjavík.