Suðurlandsbraut 30, 4. hæð
Sími: 577 5600
[email protected]
Opið frá 9-15 alla virka daga.
Sumaropnun 9-14 alla virka daga.
Hótel Laugarbakki er notalegt 56 herbergja sveitahótel með öllum helstu þægindum nútímahótels. Öll herbergi eru með sérbaðherbergi, sjónvarpi, hárblásara, snyrtivörum og því helsta sem þarf fyrir notalega dvöl. Heitir pottar eru til afnota fyrir gesti og á hótelinu er frítt Internet, góður veitingastaður, Bakki restaurant, og Bakki bar.
Mikil náttúrufegurð er í nágrenni Laugarbakka, svo sem Kolugljúfur, Hvítserkur og Borgarvirki, til að nefna það helsta. Margar fallegar gönguleiðir eru um Miðfjörð og stutt er á slóðir bókarinnar Náðarstund, þar sem síðasta aftaka á Íslandi fór fram. Bjarg í Miðfirði er um 5 km frá Laugarbakka en þar eru söguslóðir Grettis Ásmundarsonar.
Á Hvammstanga er vinsæl sundlaug, Selasetur Íslands, KIDKA ullarverksmiðja og BARDÚSA verslunarminjasafn, að ógleymdu KVH – Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga. Frá Hvammstanga er einnig hægt að fara í selaskoðunarsiglingar yfir sumartíman
Innritun hefst kl.15 og útritun er til kl.12.
Hótel Laugarbakki, Skeggjagata 1, 531 Hvammstangi