Íslenska Hamborgarafabrikkan

Við viljum að fólki á öllum aldri finnist gaman að koma á Fabrikkuna. Þess vegna leggjum við hjarta okkar og sál í að veita lifandi og skemmtilega þjónustu og töfra fram hágæðamat úr hágæðahráefni. Hjartað í matseðli Hamborgarafabrikkunnar eru ferköntuðu hamborgararnir okkar. Á Fabrikkunni meðhöndlum við hamborgarann eins og stórsteik. Af þeirri virðingu sem hann á skilið. Hamborgari er nefnilega ekki það sama og hamborgari.

Íslenska Hamborgarafabrikkan tekur á móti eftirfarandi Óskaskrínum

Gott að vita

Hamborgarakjötið okkar er úr hæsta gæðaflokki og sent ferskt á alla staði. Brauðið er sérbakað af Myllunni, Bernaisesósan er hrærð uppá gamla mátann á hverjum morgni og nachosið er handlagað og steikt á staðnum. Allar sósurnar okkar eru framleiddar sérstaklega fyrir Fabrikkuna.

Staðsetning

Hamborgarafabrikkan, Höfðatorg 2, 105 Katrínartún

Bókanir

Borðapantanir í síma 575-7575

Bóka borð