KEF SPA

KEF SPA setur ný viðmið þegar kemur að vellíðan á Íslandi.

Með þessari fyrstu heilsulind í Keflavík vildum við ná fram því markmiði að þú finnist þú vera kominn í aðra veröld. Veröld glæsileika burt frá amstri dagsins sem býður þér upp á fyrsta flokks meðferðir, hreyfingu og slökun sem endurnæra líkama og sál. Stígðu inn í heim þar sem fáguð og elegant hönnun mætir kyrrðinni og litagleðinni úr íslenskri náttúru. Engu hefur verið sparað er viðkemur byggingu heilsulindarinnar sem er prýdd Versace listmunum og lúxushúsgögnum sem veitir þér einstakt athvarf handan hversdagsleikans. Gleymdu þér í vellíðan og þeim þægindum sem við höfum upp á að bjóða.

Á KEF SPA fullkomnar þú listina að njóta.

KEF SPA tekur á móti eftirfarandi Óskaskrínum

Áhugavert

KEF SPA er glæný heilsulind í Keflavík sem opnaði í lok árs 2024 og er staðsett á hinu glæsilega og rótgróna Hótel Keflavík sem lengi hefur verið þekkt fyrir einstakan glæsileika.

Staðsetning

KEF SPA, Vatnsnesvegi 12-14, 230 Keflavík

Bóka borð