Landhótel

Við bjóðum ykkur velkomin á Landhótel sem er staðsett í Landsveit á Suðurlandi. Hótelið er umvafið náttúrufegurð hvert sem litið er. Hér er hægt að slaka vel á í undurfögru umhverfi og upplifa fjölbreytta afþreyingu í íslenskri náttúru með vinum og fjölskyldu .

Í nágrenni við hótelið eru flestir áhugaverðustu staðir Suðurlands og eru óteljandi afþreyingarmöguleikar í boði eins og jöklaferðir, fjallgöngur, hjólaferðir, dagstúrar í Landmannalaugar, Þórsmörk, Þjórsárdal ofl. Landhótel er með mjög rúmgóð herbergi og glæsilega fundaraðstöðu fyrir stóra sem smáa fundi hvort sem það er fyrir ráðstefnur, hópefli, vinnufundi, árshátiðir eða önnur tilefni.

Gott að vita

Gildir ekki frá 1. júní til 31. október.

Staðsetning

Landhótel, 851 Hella

Bókanir

Vinsamlegast bókið með því að senda tölvupóst á [email protected] eða í síma 558-0550

Landhótel tekur á móti eftirfarandi Óskaskrínum