Landnámssetrið

Hádegishlaðborðið okkar nýtur sífellt meiri vinsælda. Þar er á boðstólum gnægð kaldra grænmetisrétta og salöt, heit súpa og ilmandi nýbakað brauð. Á fimmtudögum er svo alltaf einn heitur réttur. Í Borganesi er Landnámssetur Íslands þar sem sögusviðið er Egilssaga. Hér eru tvær sýningar þar sem landnámssaga er rakin og söguþráður Egilssögu tekur á sig áþreifanlega mynd. Á landnámssýningunni er notast við sjónvarpsskjái, gagnvirk kort og hægt að stíga í stefni á víkingaskipi sem hreyfist. Egilssýning er í niðurgröfnum steinkjallara gamla pakkhússins og sett fram með dulúð og draugalegum myndum eftir marga listamenn, unnum í tré.

Landnámssetrið tekur á móti eftirfarandi Óskaskrínum

Staðsetning

Landnámssetrið, Brákarbraut 13-15, 310 Borgarnes

Á borðum alla daga frá kl. 11:30 til 15:00.