Litli Geysir

Litli Geysir hótel er staðsett rétt við hinn heimsfræga Geysi í Haukadal og heitir eftir einum hvernum á hverasvæðinu, Litla Geysi. Á Litla Geysi eru 22 herbergi sem öll eru útbúin með flatskjá og sér baðherbergi. Þar er setustofa við arineld og útsýni yfir hverasvæðið í mjög svo þægilegu umhverfi. Gott þráðlaust internet. Einstaklega góður veitingarstaður þar sem okkar metnaður er að nýta allt það góða hráefni sem er í nágrenni við okkur. Frábærar gönguleiðir upp í Haukadalsskóg. Geysis gólfvöllurinn er í næsta nágrenni hótelsins og stutt í fjölda afþreyingu. Njótið sveitasælunnar.

Litli Geysir tekur á móti eftirfarandi Óskaskrínum

Áhugavert

Óskaskrínsgestir getið þið farið í göngutúr um Haukadalsskóg, þar sem umhverfið er fegurra en orð fá lýst.

Gott að vita

Staðsetning hótelsins býður upp á ótal upplifanir í náttúru og notalegheitum. Gullfoss, gönguleiðir, sögustaðir, bændamarkaður og náttúruböð – allt innan seilingar.

Staðsetning

Litli Geysir, Geysir, 806 Selfoss

Bókanir

Vinsamlegast bókið með því að senda tölvupóst á [email protected], eða í síma 480-6800