Narfeyrarstofa Stykkishólmi

Narfeyrarhús mun hafa verið reist fyrir Málfríði Möller, ekkju Möllers apótekara á árunum 1901-1906. Húsið var þá ýmist kallað Málfríðarhús eða Narfeyrarhús. Narfeyrarhús er nú aðsetur veitingastaðarins Narfeyrarstofu sem leggur metnað sinn í að draga fram sérkenni Breiðafjarðar og svæðisins umhverfis Stykkishólm í sinni einstöku matreiðslu. Þar er framreiddur matur úr besta fáanlega hráefni á hverjum tíma úr matarkistunni Breiðafirði.

Narfeyrarstofa Stykkishólmi tekur á móti eftirfarandi Óskaskrínum

Áhugavert

Fjölbreytni náttúru og lífríkis á Snæfellsnesi og við Breiðafjörð er rómuð. Í bæjarlandi Stykkishólms eru greiðar gönguleiðir um fjörur, tanga og góða útsýnisstaði.

Gott að vita

Útsýnið yfir Stykkishólmshöfn gefur staðnum ævintýralegan svip.

Staðsetning

Narfeyrarstofa, Aðalgata 3, Stykkishólmur

Bókanir

Vinsamlegast bókið með því að senda tölvupóst á [email protected], eða í síma 438-1119

Opið alla daga á sumrin frá 11.30- 23.00 – kynnið ykkur vetraropnun.