Suðurlandsbraut 30, 4. hæð
Sími: 577 5600
[email protected]
Opið frá 9-15 alla virka daga.
Sumaropnun 9-14 alla virka daga.
Qi (Chi) er hrein tær lífsorka í allri náttúrunni. Qigong æfingar og hugleiðsla hafa góð áhrif á líkama og sál. Þær eru einfaldar og allir geta gert og notið þeirra. Þú byggir upp jákvætt hugarfar og styrk til að standa óhræddur með þér í dagsins önn. Ástundun Qigong hefur góð áhrif á samskipti, eykur hugarró og einbeitingu.
Qigong lífsorku-æfingarnar hafa verið stundaðar í Kína í yfir 5000 ár. Æfingarnar byggja á djúpri öndun, hugleiðslu og hreyfingu. Þær opna á orkubrautir og losa um andlega og líkamlega spennu. Æfingarnar og hugleiðslan eru ein besta leiðin til að viðhalda heilsu og lífsgleði.
Þorvaldur Ingi Jónsson kennir og leiðir Qigong lífsorkuæfingarnar.
Fyrir alla þá sem vilja auka lífsorku og jákvæðar tilfinningar. Opna betur á orkubrautir líkamans, styrkja bæði andlega og líkamlega heilsu. Minnka stress og líkur á kulnun og kvíða. Auka einbeitingu og samskiptahæfni.
Æfingarnar eru einfaldar þannig að allir geta gert þær og notið.
Garðatorg, Garðabær.