Rauða Húsið á Eyrarbakka

Rauða húsið er einn af best þekktu veitingahúsum landsins, enda hefur veitingastaðurinn löngum verið rómaður fyrir dásamlega sjávarrétti og þá sérstaklega fyrir humarinn, sem þykir með þeim bestu á landinu. Staðsetningin er frábær og hefur verið vinsælt að bregða sér út eftir matinn til þess að njóta þeirrar einstöku náttúrufegurðar sem Eyrarbakki hefur upp á að bjóða. Að fá sér göngutúr meðfram sjónum þar sem tunglsljósið speglast í haffletinum og norðurljósin leika um himininn er eitthvað sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara.

Rauða Húsið á Eyrarbakka tekur á móti eftirfarandi Óskaskrínum

Áhugavert

Íslendingar voru lengi að átta sig á gæðum humars en humarveiðar til útflutnings hófust fyrst hér á Eyrarbakka árið 1954.

Gott að vita

Staðurinn býður upp á veislusali fyrir allskyns mannfögnuði eins og fermingar, brúðkaup eða árshátíðir en við getum tekið á móti allt að 150 manns á efri hæð hússins.

Staðsetning

Rauða Húsið, Búðarstíg 4, 820 Eyrarbakki

Bókanir

Vinsamlegast bókið með því að senda tölvupóst á [email protected], eða í síma 483-3330

Opið mið-fös kl. 18-21, lau-sun kl. 12-21