Secret Lagoon

Secret lagoon einnig þekkt sem Gamla Laugin er náttúrulaug og er staðsett í Hverahólmanum við Flúðir. Laugin er elsta sundlaug á Íslandi upphaflega byggð 1981 og þar lærðu margir að synda á árum áður. Margir fallegir hverir eru við laugina, meðal annars lítill goshver, litli Geysir sem gís á nokkurra mínútna fresti. Laugin hefur nú verið endurbyggð í upprunalegri mynd og hefur verið leitast við að halda sérstöðunni.

Secret Lagoon tekur á móti eftirfarandi Óskaskrínum

Áhugavert

Að baða sig í Gömlu lauginni er einstök upplifun allt árið um kring, hverasvæðið og gufan gefa svæðinu dulúðugan blæ. Hægt er horfa á hverinn gjósa og á veturna dansa norðurljósin gjarnan yfir Gömlu lauginni. Vatnið er 38-40 °C heitt allt árið.

Gott að vita

Flúðir tengjast  Gullna hringnum með nýrri brú yfir Hvítá en einnig er hægt að aka beint frá Gullfossi yfir Brúarhlöð og njóta fjölbreyttrar náttúru á leiðinni.

Staðsetning

Secret Lagoon, Hvammsvegur, 845 Flúðir

Bókanir

Vinsamlegast sendið tölvupóst á [email protected], eða í síma 555-3351