Vínstofa Friðheima

Vínstofa Friðheima er vínbar og bistro, staðsett í einu elsta gróðurhúsi Friðheima.

Vínstofan býður upp á breitt úrval vína með sögu og sérstöðu, ásamt fjölbreyttu úrvali hanastéla þar sem lögð er áhersla á fersk og heimaræktuð hráefni. Með drykkjunum bjóðum við upp á ljúffenga rétti á borð við bruschettur, pastarétti, ostaplatta og eftirrétti, þannig að hugurinn fer ósjálfrátt að reika til Miðjarðarhafsins.

Komdu og njóttu!

Áhugavert

Vissir þú að í Friðheimum eru um 10.000 plöntur sem þarf að snyrta, vefja og tína af í hverri viku?

Gott að vita

Frjálst val af seðli þar sem boðið er upp á fjölda ljúffengra rétta og drykkja.

Staðsetning

Friðheimar, 806 Selfoss.

Bókanir

Ekki er þörf á að bóka fyrirfram nema fyrir hópa stærri en 6 manns.

Opið frá kl. 12:00-22:00 alla daga.

Skoða vefsíðu

Vínstofa Friðheima tekur á móti eftirfarandi Óskaskrínum