Óskaskrín er frábær leið til að gleðja starfsfólkið þitt !
Við erum búin að útbúa sérstaka fyrirtækjapakka sem eru
sérhannaðir fyrir fjölbreytta starfsmannahópa. Í fyrirtækjapökkunum okkar eru
fleiri valmöguleikar en í hefðbundnum ÓSkaskrínum. Þar erum við með blöndu af fjölmörgum
ólíkum valkostum – veitingastaði, snyrtistofur, hótel, upplifanir
og allskyns afþreyingu svo allir ættu að finna sér eitthvað við sitt hæfi.
Við bjóðum upp á 3 ólíkar leiðir til að gefa starfsfólkinu
þínu Óskaskrín.
–
Við erum með hefðbundnu gjafaöskjurnar okkar sem
hægt er að sérmerkja með persónulegri kveðju ásamt litum og logo fyrirtækisins.
Inni í öskjunni er gjafakort sem er bæði hægt að nota beint eða breyta í
rafrænt gjafakort og geyma í rafrænu veski í farsímanum.
–
Við erum með sérhannað umslag sem opnast með 4
flipum og inni í því er spjald með QR kóða til að setja gjafakortið í rafrænt
veski í farsímanum. Þessi umslög er bæði hægt að sérmerkja að utan og eins er
hægt að setja lengri persónulega kveðju inn í umslagið ásamt litum og logo
fyrirtækisins.
MYND
–
Loks er hægt að gefa Óskaskrín eingöngu rafrænt.
Þá fær hver starfsmaður SMS skilaboð með persónulegri kveðju frá fyrirtækinu. Í
skilaboðunum er svo linkur sem hægt er að nota til að setja gjafakortið í
rafrænt veski í símanum. Einnig er hægt að senda hverjum stafsmanni tölvupóst
með pdf skjali. Þá er hægt að sérhanna skjalið að ykkar óskum og á skjalinu er
gjafakortakóði sem hægt er að nota til að setja gjafabréfið í rafrænt veski í
símanum. Hægt er að stýra því hvenær
starfsmenn fá þetta gjafabréf sent til sín.
Hægt er að sjá alla valmöguleika í Óskaskríni á heimasíðunni
okkar með því að slá inn gjafakortanúmerið. Úrvalið í fyrirtækjapökkunum okkar
er stöðugt að aukast og breytast og allir nýir valkostir birtast á heimasíðunni
okkar fyrir ykkar starfsfólk.
Fyrirtækjapakkarnir okkar eru í 6 verðflokkum.
–
ASKJA, 5.900KR
–
BAULA, 9.900KR
–
ESJAN, 12.900KR
–
HEKLA, 16.900KR
–
DYNGJA, 24.900KR
–
KATLA, 39.900KR
Við bjóðum fyrirtækjum líka upp á að vera með Óskaskrín á
lager hjá sér fyrir hinar ýmsu gjafir, starfsafmæli, afmæli og aðrar
tækifærisgjafir. Þá er Óskaskrínið virkjað þegar gjöfin er gefin og er þetta
því mjög þægileg lausn fyrir hinar ýmsu gjafir sem gefnar eru reglulega hjá
fyrirtækjum allt árið um kring.
Endilega hafði samband við okkur og við hjálpum þér að setja
saman hina fullkomnu gjöf fyrir þitt starfsfólk. Hlökkum til að heyra frá þér.
s: 577-5600