Við höfum útbúið Óskaskrín sem henta sérstaklega vel fyrir fyrirtæki. Í fyrirtækjapökkunum okkar eru fleiri valmöguleikar en í hefðbundnum Óskaskrínum. Þar erum við með blöndu af upplifunum – veitingastaðir, snyrtistofur, hótelgistingar, afþreying og upplifanir og eru þau sérstaklega hugsuð fyrir fjölbreytta starfsmannahópa svo allir finni eitthvað við sitt hæfi.
Þessi Óskaskrín eru í 6 verðflokkum. Kr. 5.900 með 24 ólíkum valkostum – 9.900 með 36 ólíkum valkostum – 12.900 með 32 ólíkum valkostum– kr. 16.900 með 82 ólíkum valkostum – kr. 24.900 með 24 ólíkum valkostum – kr. 34.900 með 44 ólíkum valkostum.
Við stofnum svo sérstakt vefsvæði fyrir þau kort sem fyrirtækið gefur þar sem starfsmaðurinn getur slegið inn númer gjafakortsins og séð á hverjum tíma alla þá valkosti sem úr er að velja en úrvalið er stöðugt að batna og breytast og allir nýjir valkostir sem bætast við birtast starfsmanninum hér.
Við bjóðum fyrirtækjum að sérhanna og sérmerkja Óskaskrínið t.d. með logo fyrirtækisins, lit og öðrum sérkennum. Hér er það bara ímyndunaraflið sem er takmarkandi þáttur. Handbókin sem er í öskjunni fær svo sama útlit og sömuleiðis gjafakortið sjálft. Einnig er hægt að senda Óskaskrínið rafrænt á starfsfólkið með sms og tölvupósti og þar er hægt að sérhanna tölvupóstinn og rafræna kortið með ykkar litum, logo og persónulegri kveðju.
Við getum auk þessa bætt við sérstakri kveðju frá fyrirtækinu sem færi inn í öskjuna. Jafnframt bjóðum við innpökkun.
Við bjóðum fyrirtækjum líka að sérmerkja t.d. starfsaldursgjafir, afmælisgjafir og aðrar tækifærisgjafir sem fyrirtæki geta haft á lager hjá sér og við virkjum svo þegar gjöfin er afhent og þá fer jafnframt greiðsla fram. Mjög þægileg lausn fyrir hinar ýmsu gjafir sem gefnar eru reglulega hjá fyrirtækjum allt árið um kring.
Með því að ýta hér má sjá bækling með þeim fyrirtækjakostum sem í boði eru
