Chat with us, powered by LiveChat
25 mín Heilsu- og slökunarnudd ásamt endurnærandi kísilleirmeðferð og aðgangi að Hreyfing spa

Opna - Velja - Njóta

  • 25 mín Heilsu- og slökunarnudd
  • Endurnærandi kísilleirmeðferð
  • Aðgangur að Hreyfingu Spa og Heilsulind

Óskaskrín

25 mín Heilsu- og slökunarnudd ásamt endurnærandi kísilleirmeðferð og aðgangi að Hreyfing spa


Einstök spa upplifun í notalegu slökunarrými með hengirólum, innrauðri saunu og heitum potti. Úti á veröndinni eru tveir heitir pottar annar með jarðsjó ásamt köldum potti, saunu og blautgufu. Spa gestir fá einnig handklæði og slopp. 

Innifalið er aðgangur að spa, endurnærandi kísilleirmeðferð og 25 mín heilsu- og slökunarnudd.

Endurnærandi kísilleirmeðferð 

Einstök meðferð þar sem gestir bera hreinan kísil á húðina og slaka á í 20 mínútur í sérhönnuðum leirgufuklefa. Hitastig klefans eykst jafnt og þétt og Eucalyptus olía í samblandi við heitar gufur spila stórt hlutverk í að stuðla að djúpri slökun. Í lokin verður gufan að léttu regni sem skolar kísilinn af á mildan hátt. Meðferðin veitir húðinni heilbrigðan ljóma og fallegt yfirbragð.

Heilsu- og slökunarnudd 25 mín

Eykur blóðstreymi og súrefni til vöðva i útlimum. Losar um spennu i líkamanum og er sniðið að þörfum hvers og eins. Áhrifaríkt og markvisst nudd sem losar um bólgur og spennu á tilgreindum svæðum. Dregur úr streitu og þreytu. Veitir góða slökun og vellíðan.


Áhugavert

Hreyfing er staðsett í Glæsibæ og þar er boðið upp á allt það besta sem völ er á á líkamsræktarstöðvum í dag.

Gott að vita

Í Hreyfingu er boðið upp á mikið af spennandi nýjungum sem tengjast almennri líkamsrækt og vellíðan. Þar er boðið upp á allt það nýjasta og besta hverju sinni í líkamsrækt ásamt fyrsta flokks snyrti-, nudd og spa meðferðum. Hreyfing er því góður kostur fyrir þá sem vilja gera vel við sig þegar kemur að heilsurækt.

Hvar

Heilsulind Hreyfingar er í Glæsibæ 104 Reykjavík

Shopping Cart