Opna - Velja - Njóta
- 50 mín Heilsu- og slökunarnudd
- Endurnærandi kísilleirmeðferð
- Aðgangur að Hreyfingu Spa og Heilsulind
Óskaskrín
50 mín Heilsu- og slökunarnudd ásamt endurnærandi kísilleirmeðferð og aðgangi að Hreyfing spa
Einstök spa upplifun í notalegu slökunarrými með hengirólum, innrauðri saunu og heitum potti. Úti á veröndinni eru tveir heitir pottar annar með jarðsjó ásamt köldum potti, saunu og blautgufu. Spa gestir fá einnig handklæði og slopp.
Innifalið er aðgangur að spa, endurnærandi kísilleirmeðferð og 25 mín heilsu- og slökunarnudd.
Endurnærandi kísilleirmeðferð
Einstök meðferð þar sem gestir bera hreinan kísil á húðina og slaka á í 20 mínútur í sérhönnuðum leirgufuklefa. Hitastig klefans eykst jafnt og þétt og Eucalyptus olía í samblandi við heitar gufur spila stórt hlutverk í að stuðla að djúpri slökun. Í lokin verður gufan að léttu regni sem skolar kísilinn af á mildan hátt. Meðferðin veitir húðinni heilbrigðan ljóma og fallegt yfirbragð.
Heilsu- og slökunarnudd 50 mín
Eykur blóðstreymi og súrefni til vöðva i útlimum. Losar um spennu i líkamanum og er sniðið að þörfum hvers og eins. Áhrifaríkt og markvisst nudd sem losar um bólgur og spennu á tilgreindum svæðum. Dregur úr streitu og þreytu. Veitir góða slökun og vellíðan.