Chat with us, powered by LiveChat
Hótel Blönduós

Opna - Velja - Njóta

Gisting í eina nótt í tveggja manna herbergi ásamt morgunverði.

Óskaskrín

Hótel Blönduós


Hótel Hótel Blönduós er staðsett í gamla bænum á Blönduósi sem kunnugir segja einstakan sökum ósnortinnar götumyndar og hótelið nú óðum að taka á sig gullfallega mynd til samræmis við upphaflegt útlit. Elsti hluti hótelsins, hið svokallaða Sýslumannshús, var byggt árið 1900 en frá árinu 1943 hefur það þjónað ferðalöngum sem hótel og veitingastaður sem einnig opnar nú á ný undir nafninu Sýslumaðurinn.

Hótelið býður upp á 19 herbergi; einstaklingsherbergi, tveggja manna herbergi og fjölskylduherbergi. Baðherbergi er á öllum herbergjum sem og sturta en fjölskylduherbergin eru með baði. Útsýnið er breytilegt eftir herbergjum, ýmist yfir gamla bæinn eða Húnaflóann. 


Áhugavert

Sýslumaðurinn, veitingastaður hótelsins, opnaði þann 15. maí síðastliðinn. Boðið er upp á morgunverðarhlaðborð á hverjum degi og á kvöldin er hægt að snæða þar kvöldverð. Drykkir eru í boði á barnum okkar. Frá barnum og veitingastaðnum er gríðarlega fallegt sjávarútsýni.

Gott að vita

Hótel Blönduós er sumarhótel sem er opið frá 1.maí - 31.október.

Hvar

Aðalgata 6, 540 Blönduós.

Hvenær

Hótel Blönduós er opið frá 1.maí - 31. október.

Shopping Cart