Chat with us, powered by LiveChat
Hótel Örk

Opna - Velja - Njóta

Gisting, 3ja rétta kvöldverður og morgunverður fyrir tvo.

Óskaskrín

Hótel Örk


Hótel Örk í Hveragerði hefur löngum verið talið með glæsilegustu hótelum landsins og varla hægt að komast hjá því að taka eftir því þegar keyrt er hjá, svo tignarleg er bygging þess. Hótelið er þekkt fyrir falleg herbergi og dásamlegan mat á HVER Restaurant sem er nýr veitingastaður á hótelinu.. Á hótelinu er boðið upp á ýmsa afþreyingu eins og níu holu golfvöll og sundlaug, ásamt heitum pottum og gufu sem upplagt er að skella sér í eftir daginn og njóta þess að láta þreytuna líða úr sér.
Minnum á að nauðsynlegt er að afhenda óskaskrínskort við innritun.


Áhugavert

Hótelið er staðsett í dásamlegu umhverfi, þar sem auðvelt er að finna skemmtilegar gönguleiðir eða rölta um blómabæinn og skoða fallega garða, en Hveragerði hefur löngum verið þekkt fyrir mikla garðyrkju iðkun.

Gott að vita

Hótelið bíður upp á alla aðtöðu til veisluhalda og er starfsfólk okkar ávalt reiðubúið til þess að aðstoða þig við að skipuleggja hvort sem er ráðstefnur eða veislur

Hvar

Hótelið bíður upp á alla aðtöðu til veisluhalda og er starfsfólk okkar ávalt reiðubúið til þess að aðstoða þig við að skipuleggja hvort sem er ráðstefnur eða veislur

Hvenær

Hótelið er opið allan ársins hring en þetta Óskaskrín gildir ekki í júní, júlí, ágúst

Bókanir

Bókanir fara fram á vefsíðu hótelsins og nota skal kóðann "Oskaskrin" þegar bókun er gerð. Hér er síðan: Bóka hérna 

Shopping Cart