
Opna - Velja - Njóta
Hverasnorkl í Kleifarvatni fyrir einn með reyndum leiðsögumanni hjá Dive.is
Óskaskrín
Hverasnorkl í Kleifarvatni
Þú þarft engin réttindi eða reynslu til að snorkla enda flýturu á yfirborðinu og nýtur útsýnisins. Við snorklum í þurrgalla sem heldur öllum hlýjum og þurrum meðan á snorklinu stendur. Snorkl hentar fyrir alla fjölskylduna (eldri en 12ára).
Yfirleitt eru hverasvæði of heit til þess að snorkla þar en Kleifarvatn er einstakt að því leiti að þar er hægt að snorkla og sjá flottar loftbólur út um allt. Í aðeins hálftíma keyrslu úr bænum er hægt að upplifa eins og að vera á annarri plánetu. Þessi flotti snorkl staður var uppgötvaður frekar nýlega. Mjög fáir eru á svæðinu þannig að tilfinningin er eins og að vera ein(n) með náttúrunni.
Til að sjá flottustu loftbólurnar þarf að ganga 800 metra og synda tæpa 50 metra. Við gerum okkur klár alveg við vatnið þar sem sjást hvítir og gulir litir frá hverasvæðinu. Um leið og við syndum að staðnum þá sjáum við og finnum fyrir breytingum í vatninu og loftbólurnar fara að sjá sig. Margir hafa líkt þessari upplifun eins og að snorkla í kampavínsglasi!