Chat with us, powered by LiveChat
Kafað að Strýtunni í Eyjafirði

Opna - Velja - Njóta

Ferðin gildir fyrir einn ásamt öllum búnaði.

Óskaskrín

Kafað að Strýtunni í Eyjafirði


Á 65 metra dýpi í miðjum Eyjafirði er að finna heita uppsprettu á hafsbotni þar sem út streymir hveravatn ríkt af steinefnum. Þegar þessi steinefni komast í snertingu við kaldan sjóinn sem umleikur hverinn verður hröð storknum sem í tímans rás (á 10 þúsund árum!) hefur myndað hátt í 40 metra háa kalksteinsstrýtu. Lengi hafði verið vitað um heita uppsprettu á þessum slóðum en það var um 1990 sem fyrst var farið að rannsaka og kortleggja undrin sem þeim fylgdu. Strýtan hefur nú verið friðlýst sem náttúruundur á heimsvísu.


Áhugavert

Vitað er um örfáar sambærilegar strýtur á öðrum hafsvæðum en strýtan í Eyjafirði er sú eina sem vitað er um á grunnsævi og þar með sú eina í heiminum sem hægt er að kafa að!

Gott að vita

Skilyrði er að þátttakendur hafi viðurkennd sportköfunarréttindi. Allur búnaður er útvegaður.

Hvar

Sævör ehf. - Akureyri Þegar búið er að ganga frá bókun í ferðina er ákveðið hvar og hvenær ferðin hefst.

Hvenær

Hægt er að fara í köfun að Strýtunni allan ársins hring. strytan.is

Bókanir

Sævör ehf. - Akureyri Sími: 862 2949 [email protected] strytan.is

Shopping Cart