Chat with us, powered by LiveChat
Létt handsnyrting með lökkun

Opna - Velja - Njóta

Létt handsnyrting með lökkun

Óskaskrín

Létt handsnyrting með lökkun


Snyrtistofan Dimmalimm veitir fyrsta flokks þjónustu í notalegu umhverfi. Sem handhafi Óskaskríns færð þú létta handsnyrtingu með lökkun. Handsnyrtingin hefst á því að neglur eru klipptar og þjalaðar. Þá eru naglabönd snyrt eftir þörfum áður en neglur eru lakkaðar. Að lokum er handáburður borinn á hendur.


Áhugavert

Hægt er að uppfæra létta handsnyrtingu í fulla handsnyrtingu, bæta við kornakremi eða handanuddi og eða handamaska gegn gjaldi samkvæmt verðskrá.

Gott að vita

Dimmalimm býður upp á fjölbreytt úrval meðferða þar sem hver og einn ætti að finna eitthvað við sitt hæfi. Það er okkar markmið að veita í senn persónulega og faglega þjónustu. Komdu til okkar og upplifðu ævintýralega vellíðan!

Hvar

Við erum í Hraunbæ 102a (fyrir aftan Árbæjarblóm), 110 Reykjavík.

Hvenær

Kynnið ykkur opnunartíma á dimmalimm.is Mikilvægt að panta með fyrirvara og afpanta með 24klst. fyrirvara ef breytingar verða.

Bókanir

Hægt er að bóka í gegnum heimasíðuna (noona) allan sólarhringinn hér. Einnig er hægt að hringja í síma 557-5432 á opnunartíma.

Shopping Cart