Chat with us, powered by LiveChat
Litli Geysir

Opna - Velja - Njóta

Gisting í 2ja manna herbergi, 2ja rétta kvöldverður & morgunverðarhlaðborð daginn eftir.

Óskaskrín

Litli Geysir


Litli Geysir hótel er staðsett rétt við hinn heimsfræga Geysi í Haukadal og heitir eftir einum hvernum á hverasvæðinu, Litla Geysi. Á Litla Geysi eru 22 herbergi sem öll eru útbúin með flatskjá og sér baðherbergi. Þar er setustofa við arineld og útsýni yfir hverasvæðið í mjög svo þægilegu umhverfi. Gott þráðlaust internet. Einstaklega góður veitingarstaður þar sem okkar metnaður er að nýta allt það góða hráefni sem er í nágrenni við okkur. Frábærar gönguleiðir upp í Haukadalsskóg. Geysis gólfvöllurinn er í næsta nágrenni hótelsins og stutt í fjölda afþreyingu. Njótið sveitasælunnar.


Áhugavert

Sem rómantískir Óskaskrínsgestir getið þið farið í göngutúr um Haukadalsskóg, þar sem umhverfið er fegurra en orð fá lýst.

Gott að vita

Staðsetning hótelsins býður upp á ótal upplifanir í náttúru og notalegheitum. Gullfoss, gönguleiðir, sögustaðir, bændamarkaður og náttúruböð - allt innan seilingar.

Hvar

Litli Geysir er 107 km frá Reykjavík.

Hvenær

Hótelið er opið allt árið.

Bókanir

Sími 480 6800 [email protected] hotelgeysir.is

Shopping Cart