
Opna - Velja - Njóta
Lúxusandlitsbað með steinanuddi ásamt vax/plokkun á augabrúnum.
Óskaskrín
Lúxusandlitsbað með steinanuddi ásamt vax/plokkun á augabrúnum – Snyrtistofan Alda
Handhafi Óskaskrínsins er boðið að koma í dásamlegt lúxusandlitsbað þar sem slökun er í fyrirrúmi. Innifalið er baknudd með sérstökum heitsteinum, yfirborðshreinsun húðar, brúnir snyrtar með plokkun eða vaxi, djúphreinsun sem fer eftir viðeigandi húðgerð, djúpslakandi punktanudd í andlit og höfuð, nudd á herðar, háls og andlit með sérstökum heitsteinum og í lokin er lúxusmaski borin á húðina. Snyrtifræðingur gefur einnig ráð varðandi umhirðu húðar ásamt því hvaða snyrtivörur henta viðskiptavini best.
Snyrtistofan Alda starfræk bæði á Egilsstöðum og í Neskaupstað. Snyrtistofan var opnuð 5. febrúar 2007 af Öldu Ósk Harðardóttur snyrtifræðimeistara og einnig í Neskaupstað 14. janúar 2017. Við leggjum áherslu á faglega og góða þjónustu í notalegu umhverf