Chat with us, powered by LiveChat
Tryggvaskáli Selfossi

Opna - Velja - Njóta

Aðalréttur fyrir tvo að hætti hússins

Óskaskrín

Tryggvaskáli Selfossi


Tryggvaskáli er einstaklega fallegur „à la carte“ veitingastaður sem leggur áherslu á vandaða matreiðslu með áherslu á hráefni úr héraði. Með virðingu fyrir störfum bænda útbúa matreiðslumenn staðarins virkilega vandaðan mat þar sem íslenskar- og erlendar matreiðsluaðferðir blandast skemmtilega saman. Tryggvaskáli er elsta og sögufrægasta húsið á Selfossi, byggt árið 1890 og þar er saga Selfoss máð í hverja fjöl. Í þessu sögufrægasta húsi á Selfossi og vakti strax athygli fyrir fallegt umhverfi, frábæra matreiðslu og faglega þjónustu. Upplifðu góðan mat í einstöku húsi með fallegu útsýni yfir Ölfusá, vatnsmestu á landsins.


Áhugavert

Tryggvaskáli er elsta húsið á Selfossi (1890). Tryggvi Gunnarsson barðist fyrir fyrstu brú yfir Ölfusá og samhliða brúarbyggingu var Tryggvaskáli byggður til að hýsa verkamennina. Síðar var Tryggvaskála breytt í hótel og veitingastað.

Gott að vita

Tryggvaskáli fékk viðurkenningu sem snyrtilegasta fyrirtæki Árborgar árið 2013

Hvar

Austurvegi 1, við Tryggvatorg, Selfossi.

Hvenær

Mánudaga - fimmtudaga - 16:00 - 21:00 Föstudaga - 16:00 - 22:00 Laugardaga - 11:30 - 22:00 Sunnudaga - 11:30 - 21:00 Eldhús lokað frá 15:00 - 17:00 um helgar

Bókanir

Tryggvaskáli Sími: 482 1390 [email protected] tryggvaskali.is

Shopping Cart