Chat with us, powered by LiveChat
Spa aðgangur comfort fyrir tvo hjá Hreyfing Spa

Opna - Velja - Njóta

Spa aðgangur comfort og endurnærandi kísilleirmeðferð fyrir tvo

Óskaskrín

Spa aðgangur comfort fyrir tvo hjá Hreyfing Spa


Einstök spa upplifun í notalegu slökunarrými með hengirólum, innrauðri saunu og heitum potti.  Úti á veröndinni eru tveir heitir pottar annar með jarðsjó ásamt köldum potti, saunu og blautgufu. Spa gestir fá einnig handklæði og slopp. 

Innifalið er aðgangur að spa og Endurnærandi kísilleirmeðferð  fyrir tvo

Endurnærandi kísilleirmeðferð 

Einstök meðferð þar sem gestir bera hreinan kísil á húðina og slaka á í 20 mínútur í sérhönnuðum leirgufuklefa. Hitastig klefans eykst jafnt og þétt og Eucalyptus olía í samblandi við heitar gufur spila stórt hlutverk í að stuðla að djúpri slökun. Í lokin verður gufan að léttu regni sem skolar kísilinn af á mildan hátt. Meðferðin veitir húðinni heilbrigðan ljóma og fallegt yfirbragð.


Áhugavert

 Hreyfing er staðsett í Glæsibæ og þar er boðið upp á allt það besta sem völ er á á líkamsræktarstöðvum í dag.

Gott að vita

Í Hreyfingu er boðið upp á mikið af spennandi nýjungum sem tengjast almennri líkamsrækt og vellíðan. Þar er boðið upp á allt það nýjasta og besta hverju sinni í líkamsrækt ásamt fyrsta flokks snyrti-, nudd og spa meðferðum. Hreyfing er því góður kostur fyrir þá sem vilja gera vel við sig þegar kemur að heilsurækt.

Hvar

Hreyfing Álfheimum 74 (Glæsibæ), 104 Reykjavík

Shopping Cart