Lambastaðir Guesthouse
Lambastaðir er fjölskylduvænn staður þar sem kindur, hestar, hænur, og heimilishundurinn eru í nágrenninu. Í gistihúsinu eru ellefu herbergi, öll með sér baðherbergi, einnig sameiginleg borðstofa. Lögð er áhersla á góða og persónulega þjónustu. Gjaldfrjáls wi/fi internet tenging er í húsinu og heitur pottur og sauna við húsvegginn þar sem njóta má norðurljósa á vetrarkvöldum.
Gistiheimilið er vel staðsett til að heimsækja áhugaverða staði svo sem ströndina við Stokkseyri og Eyrarbakka, þjóðgarðinn á Þingvöllum, Gullfoss, Geysi, Seljalandsfoss, Skógarfoss og Vík í Mýrdal.
Hlökkum til að sjá þig!
Opna - Velja - Njóta
Gildir fyrir:
Tveggja manna herbergi í eina nótt ásamt morgunverðarhlaðborði.
Áhugavert
Árin 2014, 2017 og 2019 var Gistihúsið Lambastöðum valið eitt af tíu bestu ”bed and breakfast” gistihúsum á Íslandi af TripAdvisor.
Gott að vita
Aðeins 5 mínútna akstur er á Selfoss frá Gistihúsinu Lambastöðum. Þar eru góðir veitingastaðir, verslanir, sundlaug og önnur afþreying.
Hvar
Gistihúsið Lambastöðum er staðsett 7 km fyrir austan Selfoss, rétt við þjóðveg nr. 1.
Hvenær
Gistihúsið Lambastöðum er opið allt árið en þetta Óskaskrín gildir ekki frá 1. júní-15. sept.
Bókanir
Bókanir:
Sími: 777 0705
Netfang: info@lambastadir.is
Vefsíða: www.lambastadir.is
Vinsamlega tilgreinið númer Óskaskríns við pöntun.
Vefmiðlar