Narfeyrarstofa Stykkishólmi
Narfeyrarhús mun hafa verið reist fyrir Málfríði Möller, ekkju Möllers apótekara á árunum 1901-1906. Húsið var þá ýmist kallað Málfríðarhús eða Narfeyrarhús. Narfeyrarhús er nú aðsetur veitingastaðarins Narfeyrarstofu sem leggur metnað sinn í að draga fram sérkenni Breiðafjarðar og svæðisins umhverfis Stykkishólm í sinni einstöku matreiðslu. Þar er framreiddur matur úr besta fáanlega hráefni á hverjum tíma úr matarkistunni Breiðafirði.
Opna - Velja - Njóta
Gildir fyrir:
Þriggja rétta kvöldverður fyrir tvo.
Áhugavert
Fjölbreytni náttúru og lífríkis á Snæfellsnesi og við Breiðafjörð er rómuð. Í bæjarlandi Stykkishólms eru greiðar gönguleiðir um fjörur, tanga og góða útsýnisstaði.
Gott að vita
Útsýnið yfir Stykkishólmshöfn gefur staðnum ævintýralegan svip.
Hvar
Narfeyrarstofa er í Stykkishólmi, sem er í senn einn fegursti kaupstaður landsins og vel staðsettur í einstakri náttúru Snæfellsness.
Hvenær
Opið alla daga á sumrin frá 11.30- 23.00 – kynnið ykkur vetraropnun.
Bókanir
Narfeyrarstofa Aðalgötu 3, Stykkishólmi Sími: 438 1119 info@narfeyrarstofa.is
Vefmiðlar