Nielsen restaurant - Egilsstaðir
Nielsen veitingahús er staðsett í hjarta Egilsstaða í elsta húsi bæjarins. Á Nielsen er boðið uppá notalega og afslappaða matarupplifun þar sem annaðhvort er hægt að sitja inni eða á veröndinni þegar veður leyfir. Aðaláhersla er lögð á að nýta hráefni úr Héraði og Austfjörðum og breytist matseðillinn því ört í takt við árstíðir og framboð hráefnis. Eigandi og yfirkokkur staðarins er Kári Þorsteinsson sem var áður yfirkokkur á Dill, eina íslenska veitingastaðnum sem hlotið hefur Michelin stjörnu.
Opna - Velja - Njóta
Gildir fyrir 3ja rétta seðil að hætti kokksins, ásamt kaffi/te með eftirrétti
Hvar
Tjarnarbraut 1,
700 Egilsstaðir
Hvenær
Sumaropnun: 11:30-22:00
Vetraropnun:
Mán 11:30-14:30
Þri-Fös 11:30-21:00
Lau 17:00-21:00
Sun LOKAÐ
Bókanir
Bókanir í síma 471-2001,
gegnum Facebook Nielsen restaurant
eða með e-mail nielsenrestaurant@gmail.com
Vefmiðlar