Prufuköfun hjá Dive
Hefur þig alltaf langað að uppgötva leyndardóma undirdjúpanna? Hefurðu velt því fyrir þér hvort að köfun sé eitthvað fyrir þig? Prufuköfun veitir þér einstakt tækifæri til þess að prófa köfun með fagmanni í öruggu umhverfi.
Þú færð tækifæri að læra grundvallarfærni í köfun og þannig að draga fyrsta andann þinn í vatni. Prufuköfunin fer fram í sundlaug. Þetta er kjörið tækifæri til að prófa búnaðinn og sjá hvort að þetta sé eitthvað sem hentar þér.
Okkar frábæra starfsfólk er allt með hæstu PADI köfunarréttindi og drifið áfram af ást og virðingu fyrir íslenskri náttúru, undirdjúpunum og hvert öðru. Við erum þar að auki 5 stjörnu PADI köfunarmiðstöð en PADI eru virt köfunarsamtök og gefa út flest köfunarréttindi í heiminum.
Opna - Velja - Njóta
Gildir fyrir
Prufuköfun fyrir einn (3 klst)
Áhugavert
Innifalið:
- Köfunarkennari
- Ein Discover köfun
- Allur nauðsynlegur köfunarbúnaður
Gott að vita
Vinsamlegast mætið með:
- Sundföt
- Stuttbuxur og bol sem má bleyta
- Auka föt
- Handklæði
Hvar
Sportköfunarskóli Íslands
Hólmaslóð 2
101 Reykjavík
Hvenær
Allt árið. Hafðu samband til að finna góðan tíma á dive@dive.is
Bókanir
Hafðu samband við að bóka tíma
dive@dive.is
s: 578-6200
Vefmiðlar