Rauða Húsið á Eyrarbakka
Rauða húsið er einn af best þekktu veitingahúsum landsins, enda hefur veitingastaðurinn löngum verið rómaður fyrir dásamlega sjávarrétti og þá sérstaklega fyrir humarinn, sem þykir með þeim bestu á landinu. Staðsetningin er frábær og hefur verið vinsælt að bregða sér út eftir matinn til þess að njóta þeirrar einstöku náttúrufegurðar sem Eyrarbakki hefur upp á að bjóða. Að fá sér göngutúr meðfram sjónum þar sem tunglsljósið speglast í haffletinum og norðurljósin leika um himininn er eitthvað sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara.
Opna - Velja - Njóta
Gildir fyrir:
3ja rétta kvöldverður fyrir tvo að hætti kokksins
Áhugavert
Íslendingar voru lengi að átta sig á gæðum humars en humarveiðar til útflutnings hófust fyrst hér á Eyrarbakka árið 1954.
Gott að vita
Staðurinn býður upp á veislusali fyrir allskyns mannfögnuði eins og fermingar, brúðkaup eða árshátíðir en við getum tekið á móti allt að 150 manns á efri hæð hússins.
Hvar
Rauða húsið er staðsett við Búðarstíg 4 á Eyrarbakka, en aðeins er um 40 mín akstur til okkar úr Reykjavík.
Hvenær
Vetraropnun: mán - fim: 17.00 - 21.00, fös - sun: 11.30 - 22.00. Sumaropnun: mán til fim: 11.30 - 21.00, fös - sun: 11.30 - 22.00.
Bókanir
Sími: 483 3330 raudahusid@raudahusid.is
Vefmiðlar