Suðurlandsbraut 30, 4. hæð
Sími: 577 5600
[email protected]
Opið frá 9-15 alla virka daga.
Sumaropnun 9-14 alla virka daga.
Hótel Örk í Hveragerði hefur löngum verið talið með glæsilegustu hótelum landsins og varla hægt að komast hjá því að taka eftir því þegar keyrt er hjá, svo tignarleg er bygging þess. Hótelið er þekkt fyrir falleg herbergi og dásamlegan mat á HVER Restaurant sem er nýr veitingastaður á hótelinu.. Á hótelinu er boðið upp á ýmsa afþreyingu eins og níu holu golfvöll og sundlaug, ásamt heitum pottum og gufu sem upplagt er að skella sér í eftir daginn og njóta þess að láta þreytuna líða úr sér.
Notkun á Óskaskrínum fer eftir framboði og þjónustuaðli gefur upplýsingar um takmarkanir á bókunum óháð mögulegu framboði ef einhverjar eru.
Hér er linkur til að bóka laus standard herbergi HOTEL ORK fyrir öll kort sem gilda í standard. Ef standard er ekki laust þá er hægt að hafa samband í tövlupósti á [email protected] til að kanna bókunarstöðu og verð á uppfærslum. Allar aðrar fyrirspurnir þarf að senda í tölvupósti þar sem ekki er tekið við bókunum í símtali. Minnum á að nauðsynlegt er að skrá kortanúmer Óskaskrínsins við bókun og gefa upp númer korts í öllum fyrirspurnum í tölvupósti.
Hótelið er staðsett í dásamlegu umhverfi, þar sem auðvelt er að finna skemmtilegar gönguleiðir eða rölta um blómabæinn og skoða fallega garða, en Hveragerði hefur löngum verið þekkt fyrir mikla garðyrkju iðkun.
Notkun á Óskaskrínum fer eftir framboði og þjónustuaðli gefur upplýsingar um takmarkanir á bókunum óháð mögulegu framboði ef einhverjar eru.
Fyrirspurnir skal senda með tölvupósti á netfangið [email protected].
Upplýsingar um bókunarstöðu eru ekki gefnar í símtali fyrir Óskaskrín. Nauðsynlegt er að bóka fyrir komu í gistingu og gefa upp kortanúmerið á Óskaskríninu.
Hótel Örk, Breiðamörk 1c, 810 Hveragerði
Bókanir fara fram á vefsíðu hótelsins og nota skal kóðann „Oskaskrin“ í afsláttakóðareit þegar bókun er gerð. Hér er síðan: Bóka hérna Nauðsynlegt er að skrá óskaskrínsnúmer í reitinn „sérstakar óskir“ við bókun
Auk þess er hægt að senda tölvupóst á [email protected] til að óska eftir bókun, kanna dagsetningar eða bóka með uppfærslum.