Suðurlandsbraut 30, 4. hæð
Sími: 577 5600
[email protected]
Opið frá 9-15 alla virka daga.
Sumaropnun 9-14 alla virka daga.
Fullkomin gjöf fyrir þá sem eiga skilið að njóta þess allra besta.
Í þessu skríni leynast úrval upplifana af hæsta gæðaflokki: lúxusdvöl á hótelum og heilsulindum, frábær matarupplifun, dekur og eftirminnilegar stundir.
Þetta er gjöfin sem heillar þegar tilefnið er stórt og þú vilt gefa eitthvað virkilega sérstakt. Þau velja sjálf sína lúxusupplifun og þú gefur þeim minningu sem gleymist ekki.
Fleiri upplifanir eru væntanlegar í þetta Óskaskrín.
Athugið að þetta skrín er eingöngu hægt að kaupa í vefverslun eða á skrifstofu okkar að Suðurlandsbraut 30, 4. hæð.
Gisting á Bryggjan Boutique fyrir tvo Í superior herbergi, aðgangur að heitum pottum og sauna, freyðivínsflaska og sætur biti við tékk inn.
*Gildir ekki 01.06 - 31.08
Deluxe upplifun: Gisting í Deluxe herbergi með morgunverði á Hótel Keflavík, þriggja rétta kvöldverður fyrir tvo á KEF Restaurant og aðgangur að KEF SPA & Fitness fyrir tvo.
Ef Óskaskrínið er notað á meðan hátíðarmatseðlar eru í boði þarf að greiða 3.000 kr. aukalega á mann.
Gisting á Hótel Vesturlandi í deluxe herbergi, aðgangur að spa og morgunverður innifalinn, freyðivínsflaska og sætur biti við tékk inn.
*Gildir ekki 01.06 - 31.08