UMI Hótel

Fallegt og hönnunardrifið hótel við suðurströndina. UMI hefur hlotið eftirsótta Michelin Key viðurkenningu sem staðfestir gæði og einstaka upplifun. Frá hótelinu liggur skemmtileg gönguleið niður að einkaströnd með útsýni yfir Vestmannaeyjar. Á staðnum er einnig framúrskarandi veitingastaður sem nýtir hráefni úr nærumhverfinu.

Áhugavert

UMI Hótel er glæsilegt hönnunarhótel þar sem róleg stemning, falleg hönnun og íslensk náttúra njóta sín til fulls. Staðsetning hótelsins skapar einstaka tengingu við náttúruna þar sem gestir geta notið kyrrðar og rólegrar stemningar í fallegri íslenskri sveit.

Gott að vita

Á hótelinu er notalegur bar við móttökuna með stórkostlegu útsýni yfir Eyjafjallajökul þar sem gestir geta slakað á yfir góðum drykk.

Staðsetning

UMI Hótel er staðsett að Leirnavegi 243, 861 Hvolsvelli, um tveggja klukkustunda akstur frá Reykjavík.

Bókanir

Vinsamlegast bókið með því að senda tölvupóst á [email protected]

Skoða hótel

UMI Hótel tekur á móti eftirfarandi Óskaskrínum