Chat with us, powered by LiveChat
Hótel Hálönd

Opna - Velja - Njóta

Tvær gistinætur í 2ja manna herbergi.

Óskaskrín

Hótel Hálönd


Hótel Hálönd er við rætur Hlíðarfjalls með frábæru útsýni yfir Akureyri og víðsýnt til allra átta. Á hótelinu eru 54 tveggja manna herbergi sem öll eru 26m2.
Hótel Hálönd er sjálfsafgreiðsluhótel og fá gestir aðgangskóða sendan fyrir innritun.

2 gistinætur í 2ja manna herbergi.


Áhugavert

Staðsetning hótelsins er upplögð fyrir ferðalanga í leit að ævintýrum á norðurlandi en hér í kring er að finna fjöldan allan af afþreyingu. Hótel Hálönd er í rólegu og öruggu umhverfi, fjarri ljósmengun svo hægt er að njóta þess að horfa á stjörnubjartan himininn eða norðurljósin dansa. Eftir annasaman útivistardag er tilvalið að slaka á og næra líkama og sál í heitu pottunum. Aðeins 5km eru í miðbæ Akureyrar en þar má finna fjöldan allan af veitingastöðum, fjölmörg söfn og fleira sem gaman er að skoða.

Gott að vita

Ath: Morgunmatur ekki í boði. Á neðri hæð hótelsins er skíða- og hjólageymsla þar sem finna má læsta þurrkskápa sem tilheyra hverju herbergi en þar er hægt að geyma og þurrka útifatnað og annan viðbúnað. Í skíða- og hjólageymslunni er aðstaða til að geyma skíðabúnað, hjólabúnað og annan viðbúnað sem gestir eru með í för. Á sama stað má einnig finna þvottaaðstöðu sem gestir hótelsins geta nýtt sér gegn gjaldi.  

Hvar

Heimaland 5-7 603 Akureyri

Hvenær

Hótelið er opið allt árið en þetta Óskaskrín gildir aðeins frá 1.október - 30.apríl.

Bókanir

Hægt er að bóka herbergi í gegnum síma: 571-8030 eða senda tölvupóst á [email protected]  

Shopping Cart